Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm,
og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum.
Guð
sagði: "Verði ljós!" Og það varð ljós.
Svo
dofnaði ljósið með tíð, tíma og syndum mannkyns og fundu þá nokkrir
ungir sveinar hjá sér þá þörf að koma saman reglulega til að ræða
Guðs orð á meðan dreypt var á Guðsveigum og syndin krufin til mergjar.
Komust reyndar svo að þeirri niðurstöðu að þeim líkaði
syndin mun betur en bjart ljósið og sömdu því sín eigin boðorð
til að vísa þeim veginn í þessari vandlifuðu veröld. Lifið
heil og njótið vel: